61. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í stigaherbergi í Alþingishúsi, föstudaginn 14. júní 2019 kl. 13:05


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:05
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 13:05
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:05
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) fyrir Líneik Önnu Sævarsdóttur (LínS), kl. 13:05
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) fyrir Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 13:05

Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason og Þorsteinn Sæmundsson voru fjarverandi.
Þórunn Egilsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Rannsókn kjörbréfs Kl. 13:05
Á fundinum var rannsakað kjörbréf Jarþrúðar Ásmundsdóttur, 3. varaþingmanns á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Ekki voru gerðar athugasemdir við kjörbréfið og mælir nefndin með samþykkt þess.

2) Önnur mál Kl. 13:06
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:06